Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Eitt augnablik af eilífri ást (0 álit)

í Ljóð fyrir 23 árum, 1 mánuði
10 sekúndur að horfa… 10 sekúndur að anda… 10 sekúndur að snerta… 10 sekúndur að finna… 10 sekúndur að kyssa… 10 sekúndur að elska… …eitt augnablik af eilífri ást…

Saga HipHopsins! (4 álit)

í Hip hop fyrir 24 árum
Já, hérna ég var að spá hvort einhver vissi hvort það væri til bók sem fjallar um sögu hiphopsins, þ.e. um uppruna og stefnum innan hiphopsins? Ef einhver veit um eitthvað svoleiðis þá endilega láta mig vita :) Takk Takk

Orðsending (0 álit)

í Ljóð fyrir 24 árum, 1 mánuði
Orðsending Vefðu orð þín varlega inní væng fuglsins og sendu hann til austurs til allra vænglausu fuglanna sem þar hýrast. Segðu honum að breiða út væng sinn og sá fræjum ástarinnar og kærleikans í hvert kramið fuglshjarta og þá, munu kraftaverkin gerast. Því orðin ein munu færa þeim vængi á ný.

Svartur koss (0 álit)

í Ljóð fyrir 24 árum, 2 mánuðum
Svarta ljóðið, sem ég samdi á svörtum degi og sendi þér í svartri öskju var svartur koss til þín frá mér.

Fullkomin leið að hamingju (1 álit)

í Ljóð fyrir 24 árum, 2 mánuðum
Ég kasta tilfinningunum út um gluggan, stend nakin á gólfinu. Ég vil ekki vera ég, Þess vegna drep ég sjálfan mig. Þetta er fullkomin leið að hamingju.

smáljóð (0 álit)

í Ljóð fyrir 24 árum, 2 mánuðum
Í miðju skógarins Þar sem alheimurinn endar Fann ég hjarta mitt

Draumsýn (1 álit)

í Ljóð fyrir 24 árum, 4 mánuðum
Mig dreymir, að sindrandi bláu augu þín komi og bjargi mér frá biturleika einsemdinnar.

Benicio Del Toro (3 álit)

í Kvikmyndir fyrir 25 árum, 2 mánuðum
Þetta er ekki grein heldur langar mig að byðja einhvern sem veit allt um bíómyndir og leikara að skrifa eitthvað um hinn kynþokkafulla og góða leikara Benicio Del Toro :) Það væri alveg frábært! Takk Takk :) Jóna

JOEY FAVOURITE :-) (2 álit)

í Gamanþættir fyrir 25 árum, 4 mánuðum
Jæja, elskurnar mínar! Ég er mikið FRIENDS FAN og þá aðallega JOEY FAN. Ég bara elska gaurinn og öll atriðin með honum. en ég er svo óheppinn og hef ekki stöð tvö og hef því bara séðsyrpu 1 og þrjú og mestmegnið af tvö. En allavega, mig langar svo að vita hver eru uppáhaldsatriðin ykkar með Joey!!!! Ég man alltaf eftir atriðinu, eða þættinum þar sem hann er að láta chandler redda sér leikprufu á fimmtudegi hjá gamallri skólasystur hans og fer svo að kenna Chandler dagana:“Monday-one day,...
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok