Sko, aðferðin sem ég nota við að stilla þetta, er aðferð sem ég lærði einhverntímann til þess að fá sem dýpsta hljóðið og mögulegt er úr bassatrommunni.. þá tillirðu skinninu á, og herðir allar skrúfurnar þannig að þær séu fastar, svo herðirðu allar skrúfurnar betur, leggur bassatrommuna á hliðina (þannig að skinnið sem þú ert að stilla snýr upp) svo þrýstirðu hendinni á miðjuna á skinninu og losar svo hverja skrúfu fyrir sig þannig að þú sjáir hrukkur í húðinni, svo herðirðu húðina aftur...