Það var skondið hversu ótrúlega margir fylgdu Sylvíu að málum eftir undankeppnina síðustu og fyrir Eurovisionkeppnina, sennilega í kringum 98% þeirra sem maður talaði við á þeim tíma. Ég man eftir einum sem hallmælti Sylvíu hér á huga og fékk bókstaflega holskeflu yfir sig. Núna virðast menn keppast við að sverja Sylvíu af sér enda varð hún öllum og ekki síst sjálfri sér til skammar. Mér finnst allra verst sú útreið sem lögin sem kepptu á móti hennar lagi hér heima. Þau hafa varla heyrst...