Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

jewel
jewel Notandi frá fornöld 0 stig

Re: Hefur barnið ykkar fengið hitakrampa ?

í Börnin okkar fyrir 25 árum
Dóttir mín fékk hitakrampa þegar hún var rúmlega 1 árs. Hún var búin að vera veik í nokkra daga, og alltaf fékk hún svona litla kippi. Læknirinn sem kom heim sagði að þessir kippir væru bara út af hitanum. En svo fékk hún krampa, og ég hef aldrei verið eins hrædd á ævinni. Ég hélt bara að hún væri að deyja í höndunum á mér. Hún fór svo á spítala og var þar í eina nótt. En eftir þetta, þegar hún fær hita, fær hún kippi og mér finnst ég þurfa að passa betur upp á hana eftir þetta.

Re: Prinsinn er kominn =)

í Börnin okkar fyrir 25 árum, 1 mánuði
til hamingju með prinsinn og gangi ykkur vel : )

Re: Heimaþjónusta ljósmæðra

í Börnin okkar fyrir 25 árum, 2 mánuðum
Ég fékk svona heimaþjónustu og fannst það alveg frábært. Ég gat alltaf hringt í hana ef eitthvað var. Og hún kom með stuttum fyrirvara ef það var eitthvað alvarlegt. Þegar ég átti stelpuna mína (hún verður 9. ára í sumar) þá var ég á spítalanum í 5 daga. Svo fyrir þremur árum þegar ég átti strákinn fór ég heim innan 36 tíma og fékk ljósmóðurina heim. Mér leið mikið betur og var fljótari að ná mér eftir fæðinguna heldur en þegar ég var svona lengi á spítalanum. Það var líka gott að fá...
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok