Vinstri grænir lögðu fram frumvarp fyrir skömmu þar sem lagt var til að ólöglegt yrði að kaupa vændi, en ekki að selja sig, þ.e. að ábyrgðin yrði færð þangað sem hún á heima, til kaupandans. Fyrirmyndin er vændislöggjöfin í Svíþjóð sem hefur gefist mjög vel þar í landi. Það frumvarp var fellt, líklega vegna þess að margir þingmenn virðast sannfærðir um að vændi fyrirfinnist ekki hér á landi, a.m.k. varð Páll Pétursson æfareiður þegar hann komst að því að fulltrúar Stígamóta hefðu ýjað að...