Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

101 reykjavík (0 álit)

í Kvikmyndir fyrir 21 árum, 5 mánuðum
ég var eitthvað að skoða síðuna rottentomatoes.com og datt þar inná lista yfir bestu myndirnar að þeirra mati… Þar í 21. sæti er 101 reykjavík :)

jólahreingerning (1 álit)

í Heimilið fyrir 21 árum, 5 mánuðum
eruð þið eitthvað farin að gera jólahreingerningu fyrir jólin? Kallinn minn er alveg óður! hann er búinn að vera að setja allt á hvolf og skrúbbar liggur við gólfið með tannbursta! Það er samt rosalega gott að hafa svona hreinlátan mann (þó það séu nú takmörk!). En þeir eru víst vanfundnir þessar elskur svo ég ætla ekkert að vera að kvarta! :)

gítar (0 álit)

í Hljóðfæri fyrir 21 árum, 5 mánuðum
hvar get ég fengið ódýran og notaðan kassagítar?

jólaskap! (5 álit)

í Hátíðir fyrir 21 árum, 5 mánuðum
ég er komin í svo svakalegt jólaskap að ég er að springa! :) hvað með ykkur?

shawshank redemption (0 álit)

í Kvikmyndir fyrir 21 árum, 5 mánuðum
ég var enn og aftur að horfa á shawshank redemption og hún er alltaf sama snilldin, sama hversu oft maður horfir á hana!!!

túnfiskur (0 álit)

í Matargerð fyrir 21 árum, 5 mánuðum
getur ekki einhver gefið mér góð ráð af uppskriftum af túnfiskpasta? ég elska túnfiskpasta en kann bara eina uppskrift og er orðin heldur leið á henni… :)

ég þoli ekki netscape! (7 álit)

í Netið fyrir 21 árum, 5 mánuðum
ég þoli ekki netscape! það er að gera mig brjálaða, ég var orðin svo pirruð á því að ég deletaði því og nú eru enn fleiri vandamál að koma upp í sambandi við ýmsa filea

skoðanakönnun (2 álit)

í Popptónlist fyrir 21 árum, 5 mánuðum
hvað er þessi sama skoðanakönnun búin að vera lengi hérna? er ekki kominn tími til að breyta henni? :)

að koma á óvart (2 álit)

í Rómantík fyrir 21 árum, 5 mánuðum
mig langar svo rosalega að koma kærastanum mínum á óvart en er alveg uppiskroppa með hugmyndir, getur einhver komið með smá uppástungu?

simpsons (4 álit)

í Teiknimyndir fyrir 21 árum, 5 mánuðum
eru þessir þættir ennþá að meika það? eru þeir ekkert að verða uppiskroppa með húmor og annað? það er svo langt síðan ég sá þetta seinast að ég varð bara að spurja

Temptation island (3 álit)

í Sjónvarpsefni fyrir 21 árum, 5 mánuðum
horfið þið eitthvað á þá þætti? Hvað finnst ykkur um þá?

Skrekkur (3 álit)

í Skóli fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Það er reyndar langt síðan ég lauk grunnskóla en ég frétti frá frænku minni að eftir að þetta var flutt yfir í borgarleikhúsið þá sé þetta orðið alveg hundleiðinlegt? Af hverju var þessu breytt?

jeeeiii!!! :) (5 álit)

í The Sims fyrir 21 árum, 5 mánuðum
ég er loksins að læra að gera mín eigin skins, rosa ánægð :)

jólin! :) (1 álit)

í Tilveran fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Ég er rosalega forvitin að vita hvernig jólin leggjast í fólkið hérna á huga :)

Hvað kostar? (6 álit)

í Vefsíðugerð fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Vitið þið hvað það kostar að læra vefsíðugerð? og hverju mælið þið með? mig dauðlangar að læra þetta en veit barasta ekkert um þetta….

art studio og homecrafter (6 álit)

í The Sims fyrir 21 árum, 5 mánuðum
ég er alveg í rosalegum vandræðum, ég var að downloada þessum tveim forritum en alltaf þegar ég ætla að fara í það þá kemur að ég verði að stilla litina í 16bit eitthvað á desktopinu… svo er ég búin að því þá þetta samt alltaf upp :( getur einhver hjálpað mér?

hjálp hjálp hjálp hjálp!!!!!! (0 álit)

í The Sims fyrir 21 árum, 5 mánuðum
er einhver hér svo yndislegur að geta sagt mér hvar ég fæ svona forrit til að búa til objects og skins???? mig langar svo að búa til mín eigin :)

gamli grái kassinn (8 álit)

í Leikjatölvur fyrir 21 árum, 5 mánuðum
á einhver hér leiki í gömlu gráu nintendo tölvuna?

málverk (0 álit)

í Heimilið fyrir 21 árum, 5 mánuðum
ég var að velta fyrir mér hvar ég get fengið einhver flott en ódýr málverk? er kanski einhver hér listrænn í sér? ég er nefnilega rosalega picky á málverk og vil helst bara hafa málverk uppi á veggjum sem tákna eitthvað sérstakt fyrir mér. Ef einhver hefur áhuga á að gera eitthvað flott fyrir mig þá væru allar hugmyndir vel þegnar :)

draumar? (5 álit)

í Börnin okkar fyrir 21 árum, 5 mánuðum
mig er búið að vera að dreyma undanfarið að ég sé ólétt, eða sé að fæða eða eigi barn. Núna í nótt dreymdi mig næstum alla nóttina að ég væri ólétt og svo í lokin þá eignaðist ég þríbura! Getur verið að þetta sé sign? eða er undirmeðvitundin bara eitthvað að stríða mér? Mig er búið að dauðlanga í barn í nokkurn tíma núna….

1-8 sería (0 álit)

í Gamanþættir fyrir 21 árum, 6 mánuðum
veit einhver um íslenskan server þar sem ég get downloadað 1-8 seríu af friends? Vantar svo rosalega nokkra þætti inn á milli

kisurnar mínar fara úr hárum (1 álit)

í Gæludýr fyrir 21 árum, 6 mánuðum
veit einhver hér hvað er hægt að gera til að koma í veg fyrir að kisur fari úr hárum?

á einhver..... (0 álit)

í Tölvuleikir fyrir 21 árum, 6 mánuðum
á einhver leikina the 7´th guest og 11´th hour? ég væri endilega til í að kaupa þá ef einhver á… eða einhverja aðra svipaða leiki

hjálp!! (8 álit)

í Gamanþættir fyrir 21 árum, 6 mánuðum
ég var að klára að downloada 2 fyrstu þáttunum í 9 seríu en það kemur bara hljóð en engin mynd?? Vitið þið hvað getur verið að og hvernig ég get lagað þetta?

Hengirúm (6 álit)

í Heimilið fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Veit einhver hvar ég fæ eitt slíkt? mig er búið að dauðlanga í eitt svoleiðis í mörg ár en finn þetta hvergi… getið þið bent mér á eitthvað?
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok