World at War þættirnir eru án efa bestu heimildarmyndir um síðari heimstyrjöldina sem ég hef rekist á. Þetta er um 25 þættir ásamt bónus þáttum. Hver þáttur fjallar um einn hlut eða atburð og er farið mjög nákvæmt í hlutina. Hver þáttur er um klst. Þættirnir voru gefnir út árið 1974 og hafa þá sérstöðu að þeir taka á öllu stríðinu (undanfara þess, stríðinu sjálfu og ýmsu öðru sem tengist stríðinu). Þar sem þættirnir eru gerðir í kringum 1974 innihalda þeir viðtöl við marga merkilega aðila...