Já þetta var aldeilis frábært. Það sem mér finnst skemmtilegast er að BHS skuli hafa velgt MR svona ærlega undir uggum og sýnt svo ekki verður um villst að þeirra lið var síst lakara en þeirra í MR. Það vita allir að MR er fíni skólinn en BHS er “bara” verknámsskóli í úthverfi - ekki satt! Nei nú vita menn betur. Í BHS eru menn með góðu viti og þar með er BHS skóli með góðu viti. HUGULL