Tjah, frásagnir af fólki sem hefur lifað lengur eru til staðar. Í fyrstu Mósebók (Genesis) (tek fram að ég kann ekki að vitna í biblíuna)kafla 5, er ættartala frá Adam til Nóa, og kemur þar fram að Adam lifði í 930 ár. Set, sonur hans lifði í 912 ár. Svona heldur þetta áfram alveg fram til Nóa. Tekið skal fram að þessir kallar voru sprækir, því flestir gátu þeir börn sín eftir eina og hálfa öld af lífi sínu. Að sjálfsögðu er möguleiki á því að sú tímatalning sem notuð er þarna sé mjög svo...