Að gefnu tilefni verð ég undirritaður dýralæknir að svara pistli hundeiganda sem kom á dýralækningastofu mína í Skipasundi 15, þó ekki sé venja mín að fjalla um málefni einstakra viðskiptavina stofunnar á opinberum vettvangi. Viðkomandi hundeigandi kom á dýralækningastofuna með hund af kyninu stóri dani til vönunar. Á heimili eigandans, í lítilli íbúð, voru auk fjölskyldunnar tveir aðrir stórir hundar, en ástæða aðgerðarinnar var streita í hundahópnum. Líklegt var að kragi á svo geysistórum...