HIIT er skammstöfun fyrir High Intensity Interval Training sem mætti snúa yfir á íslensku og kalla lotubundna sprettþjálfun. Heitið gefur til kynna eðli æfinganna, en það eru nokkrar lotur af sprettum. Þú skiptir æfingunni, sem er ekki lengri en 20 mínútur, í lotur. Hver lota samanstendur af rólegri hreyfingu og sprettum sem er svo endurtekinn alla æfinguna. Þegar menn eru að byrja er meirihluti lotunnar róleg hreyfing (til dæmis 60 sekúndur) og svo sprettur (til dæmis 30 sekúndur), síðan má...