Eftir að hafa horft á þennan leik og skoðað umrædd atvik fram og aftur verð ég að segja að mér er vægast sagt brugðið. Ég er alveg sammála Chelsea mönnum í því að úrslitaleiknum hafi verið stolið af þeim. Ótrúleg ósanngirni sem átti sér stað í miklu mæli á Stamford Bridge síðastliðinn miðvikudag. Ég verð að viðurkenna að það var ekki sjón að sjá Barcelona senda boltann á milli sín á leiðinlegan hátt og eiga engin svör við vörn Chelsea liðsins og áttu aðeins 1 skot á mark Chelsea manna. Þetta...