Systir pabba míns, sem er þvímiður látin, hafði þessa svokölluðu gáfu eins og sumt fólk kallar það, aðrir miðil en eins og þú og margir aðrir- bullara. Þegar ég var ekki enn fædd en voru kannski 6 mánuðir í það þjáðist mamma mín af ýmsum andlegum kvillum tengda óléttu. Systir pabba míns kom til þeirra einn daginn, alveg óvænt og sagðist vilja tala við mömmu. Ef við gerum langa sögu stutta sagði hún meðal annars að ég myndi fæðast með einhverja tegund hjartagalla sem aðeins 40:60 líkur eru á...