Hvernig á að geyma rauðvín og hvítvín? Ekki batna öll vín við geymslu. Flest vín eru gerð með það fyrir augum að vera drukkin ung og halda sér kannski í 2-3 ár eftir að þau koma á markað. Þau vín sem batna við geymslu þurfa að hafa eitthvað til að bera sem heldur þeim lifandi í mörg ár. Það er burðargrindin í víninu - sýra, tannín, sykur og vínandi - og jafnframt þessu þarf vínið að hafa nægan ávöxt og vera í jafnvægi. Yfirleitt geymast rauðvín betur en hvítvín, bragðmikil vín betur en þau...