Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

gunnarbond
gunnarbond Notandi frá fornöld 62 stig
Áhugamál: Stjórnmál

Re: Frumburðarrétturinn

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 3 mánuðum
gmaria : Fyrsta og þriðja spurning : Ef einungis væri til smábátafloti ( -15 Brl ) og svo hins vegar stór frystiskip þá væri auðvelt að hafa einungis 2 útgerðarflokka. En sökum fjölbreytileika bátanna, mismundandi afkastagetu og mismunandi burða til að mæta veðri og vindum verðum við að setja þetta niður í 4 aðgreinda flokka. Það er ekki hægt að láta trillusjómanninn keppa um sóknardag á uppboðsmarkaði við útgerð stóra línuskipsins sem er mannað 16 öflugum sjómönnum og getur sótt miklu dýpra...

Re: Frumburðarrétturinn

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 3 mánuðum
1) Um leið og “svæðisbundin” uppboð munu eiga sér stað á sóknardögum mun réttur manna/byggða til veiða jafnast. Verð á kvótaheimildum í dag bíður ekki ungan mannin/n velkomin/n í greinina enda er það yfirlýst stefna Árna Mathiesen að fækka skuli fyrirtækjum og um leið útgerðarbyggðum. Hins vegar mun uppboð á sóknarheimildum vera aðlaðandi kostur fyrir bæði menn og byggðir þar sem allir standa jöfnum fæti og afrakstur uppboðanna mun renna til samfélagsins. Að skylda alls afla...

Re: Frumburðarrétturinn

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Telur enn á nokkrum tugum. Félag ungra Frjálslyndra er nýstofnað. Vonandi með hjálp allra sem hug hafa á málefnum flokksins mun sú tala aukast í nokkra hundruði á næstu dögum og vikum.

Re: Hrói höttur

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Öll sveitarfélög er liggja strandlengjunni, sveitarfélög með hafnir og viðlhlýtandi þjónustu til útgerðarinnar munu eiga uppboðsréttinn á sókninni. Ekki má gleyma að helmingur teknanna munu renna til sveitarfélaganna en hinn helmingurinn til ríkisins. Sjávarútvegsnefnd mun ákveða veiðiheimildarmark hvers sveitarfélags fyrir sig. Varðandi sölu á hráefni þá erum við með aðskilnaði veiða og vinnslu sem og með öllu hráefni skylduðu til löndunar á uppboðsmarkaði að tryggja RÉTTLÁTA samkeppni...

Re: Hrói höttur

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 3 mánuðum
M: Ef við horfum á veruleikann í dag er að finna eftirfarandi staðreyndir : a) Óöryggi byggðanna vegna núverandi framsalskerfi á aflaheimildum. b) Erlent vinnuafl leitar á slíka staði því Íslendingurinn er farin/n óöryggsins vegna. c) Það er ekki vitrænt í ljósi óöryggisins að standa að hvers kyns uppbyggingu ef hættan er fyrir hendi að með einu pennastriki/símatali geti öll útgerð lagst af í byggðinni. Þegar öryggið kemur aftur mun uppbygging eiga sér stað, fjölbreytnin mun aukast. Auðvitað...

Re: Hrói höttur

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 3 mánuðum
M. Sérhæfing fiskvinnslunnar hefur sannað sig víða t.a.m. í Færeyjum. Þar er allur fiskur skyldaður til löndunar á ferskfiskmarkaði. Magnið verður nægt til að fiskvinnslur allra byggða fái sinn skerf. Það er óheyrilegt magn sem í raun rennur til uppboða í Englandi og í Þýskalandi og íslenskur fiskverkandinn fær aldrei að bjóða í. Í Færeyjum hefur kerfið sannað að allar byggðir eru í öflugri fiskvinnslu. Við getum nýtt okkar þða góða frá færeyskri fiskveiðsstjórn en auðvitað fellur ekki allt...

Re: Hrói höttur

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Sæl GMaria. 1) Frjálslyndi flokkurinn vill hefja sínar “björgunaraðgerðir” á íslenskum sjávarútvegi með því að taka til í strandveiðiflotanum. Þar verður aflaheimildarkerfi breytt í sóknarmarkskerfi og veiðiheimildar innkallaðar til ríkis og sveitarfélaga. Hvað varðar “4ja útgerðarflokk” sem eru frystiskipin og nótaveiðiskipin þá fá þau áfram að vera í aflamarkstengdu kerfi en útgerðir þeirra fá ekki rétt til að versla niður fyrir sig (í strandveiðiflotann). Þegar bæði byggðir og allur...

Re: Hrói höttur

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 3 mánuðum
M. Þakka álit þitt og hugrenningar um sama efni. 1)Sjávarútvegsstefna XF er sammála þér er varðar bæði sóknar og aflaheimildakerfi. Við viljum strandveiðiflotann undir sóknarmark. En stórskipaflotann í aflamark ( eins og er ). Stórskipaflotinn eru frystiskipin og nótaveiðiskipin. 2) Byggðarstefna í uppboðum verður að koma fram. Ástæðurnar eru margþættar. Fiskifræðilegar, hagfræðilegar og félagslegar. Fiskifræðin er sú að dreifa veiðiálagi strandveiðiflotans jafnt yfir ströndina. Hagfræðin...

Hrói höttur

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Sæll kappi. Við túlkum þjóðsögunnar ólíkt. Þú ert velkominn á opið hús hjá XF niður í Aðalstræti 9 þriðjudaginn 4 feb. Allir bæði með og móti XF verða velkomnir. Líflegar umræður og heitt á könnunni. Endilega mættu og taktu einhverja með þér.

Hrói höttur

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Alls ekki. Ég vill ekki að flokkurinn fari ruplandi né rænandi við að ná fram sinum viðhorfum. Við skulum ekki gleyma hverjir eru hinir eiginlegu eigendur aflaheimildanna, það erum við, eina afsal aflaheimildanna er að finna í stjórnarskrá Íslands. Núverandi kvótaeigendur geta farið út í banka með þína eign og tekið lán fyrir hundruði, jafnvel milljarða króna. Við hin þurfum að biðja vini eða vandamenn til að skrifa upp á alls kyns pappíra til að aum krónan skríði inn á reikning okkar. Er...

Hrói höttur

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Stefna Frjálslynda flokksins á sjávarútvegsmálum er á annan máta en Samfylgingarmanna. Hitt er annað að þeir sem stjórna sjávarútvegsmálum í dag, þingmenn og ráðuneyti hafa bæði takmarkaða þekkingu og tilfinningu fyrir efninu. Vegna þekkingarskorts ( ég er ekki að segja að þá skorti vit ) leita þeir ráða hjá mestu hagsmunaaðilum þjóðarinnar, LÍÚ. Útkoman er það rotna sérhagsmunarbákn sem íslenskt kvótakerfi er í dag. Það eru ekki bara úthlutunarreglurnar sem eru rangar, heldur er einnig...

Hrói höttur

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Sæll kappi. Las pistil þinn um lífsgæðakapphlaupið. Mjög góður pistill og greinilegt að þú ert vel þenkjandi, rétt tengdur og drengur góður. Samlíkingin er ekki óheppileg, síður en svo að mínu viti. Hrói, Litli Jón og Tóki voru allir góðir menn með sterka réttlætiskennd. Þeir vildu ekki hlutskipti sem aumir leiguliðar undir lénsherrunum heldur lögðu líf sitt í hættu, sér og samferðarmönnum sínum til framdráttar.

Re: Hrói höttur

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Reyndar var hann það blessaður karlinn. En á kostnað þeirra ríku sem fremst stóðu í lénsfyrirkomulagi gamla Englands. Afkomu sinnar vinnu dreifði hann svo milli alþýðunnar. Það er lykt af lénsfyrirkomulagi í okkar landi í dag. Því viljum við breyta. Þorbergur Þórðarsson sagði í bréfi sínu til Láru að menn hafi á stundum brotið af sér til að ná réttlætinu fram. Og hann heldur áfram, réttnefni fyrir slík brot er orðið bylting. Byltingar hafa alltaf átt rétt á sér. Hrói var góður refur.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok