Ungum manni langaði til að kaupa afmælisgjöf handa elskunni sinni. Þar sem að þau höfðu ekki verið lengi saman þá ákvað hann eftir mikla íhugun að hanskar væru rétta gjöfin: rómantískt en ekki of persónulegt. Í fylgd með yngri systur kærustunnar fór hann og keypti par af hvítum hönskum. Systirin keypti sér hinsvegar nærbuxur. Þegar afgreiðslumaðurinn var að pakka inn þá ruglaði hann þessu saman og systirin fékk hanskana en kærastan fékk nærbuxurnar. Án þess að athuga innihaldið þá innsiglaði...