Jú, ætli það sé ekki best. Þá dregur viðurinn litinn betur í sig og eitthvað. En það tekur svakalega langan tíma. Ég t.d. gerði það á mínum Behringer (ætla að klára hann á eftir, það kemur mynd í kvöld eða á morgun), við vorum tveir strákar og unnum við það eitt að pússa hann í 6 klukkutíma (samt vorum við með svokallaðan juðara sem er verkfæri sem auðveldar manni að nota sandpappír svona).