Þegar ég tók samræmduprófin lagði ég töluverðan metnað í þau til að ég gæti fengið inngöngu í MR, jafnvel Versló. En námslega hliðin á þessum skólum var það síðasta sem ég hugsaði um. Ég lagði mikinn metnað í þessi próf svo að loksins myndi allt ómerkilega fólkið síast út og fara í skóla sem FB eða FÁ. Nú þarf ég loksins ekki daglega að horfa uppá viðbjóða svo sem dreng sem lækkar buxurnar sínar niður á mið-lærið, fer í síðu hettupeysuna og breytir göngulaginu sínu svo að hver og einn geti...