Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

flat6
flat6 Notandi frá fornöld 586 stig
Accent ‘95 - Micra 2,0GTi ’96

Re: coltinn er kominn á netið

í Bílar fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Flott. Er hann alveg tilbúinn?

Re: Intercooler????

í Bílar fyrir 22 árum, 2 mánuðum
ÉG held að hann geri ekkert annað en að kæla loftið. Einhverntíman heyrði ég talað um að það væri allt að 15%… sem gerir hann þá 144hross. Þú verður að fá svoleiðis;)

Re: Vöntun á löglegum hraðakstri

í Bílar fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Það er einmitt málið. Ef er til staður sem menn geta farið og fengið útrás á bílunum sínum myndi það pottþétt minnka hraða og glannaskstur á götum… kannski ekki mjög mikið, en þó eitthvað.

Re: Neon skoðunarkönnun

í Bílar fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Blátt.

Re: Leiðinlegur Hvinur

í Bílar fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Hjólalegur sennilega… tékkaðu á þeim.

Re: Varðandi skoðun á bíl

í Bílar fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Nett þetta… “þessi bíll rasskellti marga bíla í spyrnu, svo sem golf 1,4 , daihatsu cuore” :)

Re: Varðandi skoðun á bíl

í Bílar fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Ég hef heyrt um margt fólk sem er mjög ánægt með nýlegu bílanna frá þeim. Minn er Pony GSi '93. Lítur nokkuð vel út svosem en það er allt að fara í honum. 2demparar leka og eru mjög lélegir, hjólalega er að fara, spindlar og stýrisendar eru farnir að slitna fullmikið. Svo fór ein hjólalega í desember og gírkassinn líka.

Re: Varðandi skoðun á bíl

í Bílar fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Bíllinn minn er hrikaleg dós… dempararnir eru líka að fara, ég finn það þegar ég keyri yfir hraðahindranir.(ég þori varla að ýta á hornin á bílnum til að tékka á því, hann er svo ræfilslegur að það gæti endað, eða myndi sennilega enda á réttinga og sprautuverkstæði eftir það;))

Re: smá spurning

í Bílar fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Það má en ég held að þú þurfir lakk sem er blandað með “gúmmí”, ég held að það heiti eitthvað… man það ekki. Allavega verður lakkið mjúkt við það, það má bogna og krumpast en það skemmist aldrei. Svo þarftu að þrífa plastið mjög vel með einhverju fitu og olíuleysandi efni. Ég mæli samt með því að þú bara talir við eihvern bílasprautara.

Re: Varðandi skoðun á bíl

í Bílar fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Það er eyndar alveg satt. Þessir nýju hafa staðið sig alveg ótrúlega vel! En hinsvegar þessir gömlu, eins og ég á, eru samansettir úr einhverjum gömlum afgöngum frá mmc. Og einmitt þessir gömlu mmc voru þekktir fyrir leiðindi, sérstaklega voru það gírkassarnir.

Re: V-power ?

í Bílar fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Rúm 1,5milljón fyrir 2,5ltr bensínvél… þá má hún vera með hertum ventlasætum:) vélin er úr áli ,reyndar eru slífar og ventlasætin húðuð með einhverju svo sterku að það er ekki hægt að hona strokkanna.

Re: VW Bjalla 1972 1300cc / í vinnslu

í Bílar fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Það er allt hægt, það er bara vinna:) Það er alltaf gaman að sjá breyttar bjöllur! Þær eru flottar!

Re: Dúndrandi tuddastandpína!

í Bílar fyrir 22 árum, 3 mánuðum
“The best job in the world” … það er satt;)

Re: Varðandi skoðun á bíl

í Bílar fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Ég er líka farnn að kvíða fyrir því að fafa með minn í skoðun, það er allt að klikka í honum. Helv. hyundai

Re: V-power ?

í Bílar fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Það skiptir mig engu máli á hvaða bensín fer á bílinn ef hann gengur á því… aðalatriðið er verðið. Ég myndi aldrei kaupa flugvélabensínið ef það er eins dýrt eins og JHG segir, en þegar ég var að fljúga, sem er ekki langt síðan, kostaði líterinn af því 60kr. Og það myndi sennileg henta vel á bílinn minn þar sem er mikið blý í því. Ég vann á bensínstöð lengi og hef heyrt marga tala um þetta, sennilega eru 1 af hverjum 4 mönnum sem hafa prufað þetta á því að þetta virki… hinir segja þetta...

Re: V-power ?

í Bílar fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Ég er nú að læra um þetta akkurat núna, í vélskólanum. Nú maður er oftast sofandi í tímum en eitthvað síast inn…:) Bruninn verður hraðari við hærri octantölu og vél með háa þjöppu má ekki ganga á bensíni með of háa octantölu því það getur valdið sjálfsíkveikju og bruninn verður þá fyrir toppstöðu stimpils og þar tapast allur kraftur(bruni verður þegar stimpill er á leiðinni upp, rétt fyrir topp). Hiti verður líka meiri við hærri octantölu, ég hef meira að segja prufað það á bensínprímus. það...

Re: V-power ?

í Bílar fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Hvar er greinin? ég þyrfti að lesa hana…

Re: V-power ?

í Bílar fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Flugvélabensínið er það eina sem er selt núna sem er blý í… en ef það er svona dýrt úr dælu á bensínstöð þá er ekkert vit í að kaupa það. 98oct var blýbætt en svo hætti það, 98 er þó selt á nokkrum stöðum enn en það er blýlaust… í staðinn þarf að kaupa blýbæti sem er alltof dýr!

Re: V-power ?

í Bílar fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Bílar sem eiga að ganga á bensíni með blýi fara að mokeyða þegar þeir ganga á blýlausu bensíni. Ég veit um bíl sem eyddi 17ltr/100km á blýlausu en fór niður í 12ltr/100km þegar loksins var sett á hann blýbætiefni.

Re: V-power ?

í Bílar fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Það væri í lagi að prófa einn tank. Veistu á hvað stöð það er selt? Ætli það sé ekki miklu dýrara frá bensínstöð heldur en útá vlugvelli, ég gæti sennilega reynt að redd því útá velli en það yrði alltaf meira vesen.

Re: V-power ?

í Bílar fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Nei hann er ekki með hvarfakút.

Re: V-power ?

í Bílar fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Það er málið, það er auðvelt að plata fólk:)

Re: V-power ?

í Bílar fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Svo fór ég nú að spá í með hinn bílinn minn, sem á að ganga á 98oct m/blýi, að þetta gæti virkað ágætlega á hann. En er ekki hægt að ná sér í flugvélabensín? Það er minnir mig 101-105oct og með miklu blýi, svo kostar ca. 70kr líterinn af því.

Re: V-power ?

í Bílar fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Þetta hreinsar kannski betur spíssa og fleira. Þeir sem eru í gokartinu hafa verið að nota svona á bílanna sína, á þeim finnst enginn munur á afli. Ég hef samt heyrt af nokkrum sem taka þetta alltaf á bílana sína og vilja ekkert annað… “bíllinn eyðir alveg 1,0ltr minna á hundraðið”!… það er ekki alveg að borga sig, nema þegar það er á saman eða svipuðu verði og venjulega 95oct.

Re: V-power ?

í Bílar fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Ég passaði mig á því, ég kláraði gjörsmlega tankinn áður en ég fyllti hann. En segjum sem svo að bíllinn eyði minna með v-power, er það eki svo lítill munur að þú ert ekkert að spara á því vegna þess hve v-powerið er dýara??
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok