Nú er v-power á “tilboði” hjá shell og mjög margir taka það á bílana sína í staðinn fyrir þetta venjulega 95oct.
Ég hef aldrei trúað á þetta en ákvað samt að prófa á bílinn minn. Og það er nákvæmlega enginn munur… reyndar er ég ekki búinn með tankinn þannig ég veit ekki hvort eyðslan sé minni.

Ég var að spá í hvort þið hafið fundið mun á bílunum ykkar á þessu bensíni?
Accent ‘95 - Micra 2,0GTi ’96