Það er ekkert mál að hafa íslenska stafi í hreinu X. Raunar ætti það að virka án vandræða ef íslenskan virkar í KDE, en maður veit aldrei… Mér dettur tvennt í hug, sem gæti verið að hjá þér: 1. Þú gætir verið með vitlausa lyklaskipan uppsetta (t.d. ameríska lyklaskipan). Þú getur séð það á því að skoða stafi sem eru á mismunandi stöðum í ólíkum lyklaborðstýpum. T.d. gefur Shift-2 gæsalappir á íslensku, en at-merkið í ensku lyklaskipaninni. Þetta má laga t.d. með því að búa til .xmodmaprc...