Já það er ekki auðvelt að vera foreldri. Þessi aldur er mjög erfiður,þau geta mjög takmarkað tjáð sig og sínar tilfinningar. Annað hvort eru þau glöð og allt í góðu eða þá að þau bregðast við með því sem við köllum frekjukast. Ég á tvö börn og mín reynsla er sú að reyna að láta þessa hegðun ekki hafa neikvæð áhrif t.d. stressa ykkur upp, verða reið við hana, heldur leyfa henni að fá útrás og tala svo við hana og hugga þegar hún er tilbúin til þess. Hún lærir fljótt inn á ykkur ef þið sýnið...