Ástralir Hér eru nokkrar spurningar og svör sem birtust á upplýsingavef fyrir ferðamenn sem stefna á ferð til Ástralíu: SP: Er einhvern tímann rok í Ástralíu? Ég hef aldrei séð rigningu hjá ykkur í sjónvarpinu, hvernig fara plönturnar að því að vaxa? (Bretland) SV: Við flytjum inn fullvaxnar plöntur og sitjum svo og horfum á þær drepast. SP: Mun ég sjá kengúrur á vappi á götunum? (USA) SV: Það fer eftir því hvað þú ert búinn að drekka mikið. SP: Mig langar að ganga frá Perth til Sidney, get...