Mig langaði heldur ekki til Þýskalands þegar ég fór út sem Au-Pair… dreymdi um frakkland eða ítalíu eða bara flest annað :) Endaði samt útí Þýskalandi og sé ekki eftir því. Yndislegt að búa þar og ódýrt að ferðast þar og þaðan :) En ég vona að þér gangi sem allra best að finna útúr þessu :)
Já eins og er bjóða þau bara uppá Þýskaland. Þau eru stödd í Þýskalandi og vilja s.s. geta hitt fjölskyldurnar og séð hvernig þær lifa, hitta krakkana og skoða húsið og fleira í þeim dúr til að tékka á að allt sé í lagi :)
Þetta er setning frá George Bernard Shaw leikritahöfundi! Finnst þetta bara svo yndisleg setning og er búin að vera lengi föst í mér að ég hikaði ekki við að setja hana mig :)
hmm ég er með tattoo bak við eyrað,fannst það ekkert svo vont. Fannst verra að fá mér á púlsinn. En ætli það sé ekki bara persónubundið eins og allt annað :)
Ég er með tattoo á bak við eyrað… og Svanur á tattoo og skart gerði það og fannst það bara ekkert mál… og ég er bara 18! :) afhverju ættu þeir ekki að vilja gera það? :/
hef lýst hárið á mér áður með pakkalit. Svo ég ætla pottþétt að taka sénsinn á því aftur held ég. Aðalega að pæla hvað ég ætti að láta líða langt á milli litanna. Þar sem að ég hef alltaf verið með mjúkt og meðal þykkt hár. Ekki viðkvæmt ár. Langt því frá og það tekur voðalega vel við lit þrátt fyrir margar litanir.
lýsti hárið á mér í nóvember í fyrra. Og þá fór ég á stofu og setti strípur og keypti svo pakkalit og lýsti og það kom alveg töff út og fór svo bara aftur seinna á stofu og setti fleiri strípur. En klippti ég mig þannig að mér fannst flottara að vera með dökkt. :/ svo núna er ég að lýsa það aftur.
Er einmitt að lýsa mig… Það var svart með ljósum topp þegar ég fór í litun í dag og núna er það orðið meira brúnleitt með ljós/gyllt/appelsínugulum strípum… var nefnilega bara að spá í að kaupa mér pakkalit og lýsa það meira þannig eftir sirka 2 vikur… en ég veit ekki..
Já ég er allavega frekar jákvæð með þennann skóla held að hann sé fínn :) bara vona að fólk sé ekki mjög lokað svo að maður geti nú kynnst einhverjum og endi ekki einn útí horni ….
hvað ertu að læra? en já ég vil bara vita sem flest… veit ekkert um þennann skóla, ekki mikið talað um hann er að fara í hárgeiðsluna svona ef þú veist eitthvað hvernig það er þarna… annars vil ég bara vita allt :)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..