Ég hef tekið eftir því að Linux veröldin á Íslandi er hálf daufleg. Vissulega er nóg af einstaklingum sem kunna á Linux og þreytast seint á að dásama eiginleika og eðli þessa opna og liðuga kerfis í samanburði við Microsoft. Þó heyrist sjaldan samanburður við önnur kerfi. Ég hef samt ekki séð að þetta sé annað en bylur í t.tunnu, það liggur svo lítið eftir okkur. Ég er sjálfur að keyra bæði Windows og Linux jafnt og þétt og satt að segja stöðugt hrifnari af Uxanum. Get vissulega haldið mína...