Ég er alveg ósammála því að þetta Project Mayo geti lagt kvikmyndaiðnaðinn á hliðina. Að mörgu leiti er þetta frekar ólíkt mp3 því þar eru gæðin alveg viðunandi til að hlusta á. En ef maður er að DL myndum, þá hljóta gæðin að láta undan. Ekki reyna að segja mér að harður kvikmyndaunnandi hætt skyndilega að versla kvikmyndir því hann fái þetta frítt á netinu. Bæði mynd og hljóð eru ekki upp á marga fiska, kínverskur texti og þar fram eftir götunum. Ég á fullt af myndum á mpeg4 eða öðru...