Auðvitað er það þannig. Þeir vilja ekkert hafa 70/30 hlutfall milli stelpna og stráka. Skilst að þeir miði við að halda sig innan 60/40 hlutfalls. Fólk má kalla það kynjamisrétti, en mér þykir það sjálfsagður hlutur að vilja halda kynjahlutfallinu í skólanum nokkuð jöfnu. Bætt við fyrir 11 árum, 9 mánuðum:Vandamálið er í sjálfu sér að íslenskir strákar leggja ekki nógu mikið uppúr að fá góðar einkunnir í 10 bekk, það var þannig þegar ég var í grunnskóla og hefur versnað ef eitthvað er.