Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: hjálp með algebru..??(mjög létt..)

í Hugi fyrir 22 árum, 3 mánuðum
mig grunar að þetta “+49” sé að vefjast fyrir þér, en mundu bara að tvisvar sinnum mínus gerir plús, þannig að -7 í öðru gerir plús 49. (x-7)x(x-7)= x(í öðru) -7x -7x +49.

Re: Stelpurnar svari..

í Rómantík fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Ég vil ekki sjá skíthæla, hef aldrei verið spennt fyrir svona Bad Boy týpum. Ég ber allt of mikla virðingu fyrir sjálfri mér til þess. Almennilegir gaurar, sem sýna að þeir hafi vit í kollinum og eru ekki í neinu rugli, ég vil að þeir séu óhræddir við að sýna mér að þeir hafi áhuga á mér þegar þeir reyna við mig. Feimni er í lagi, en sjálfsöryggi verður að vera nægilegt til að þeir þori að sýna hvað í þeim býr.

Re: Davíð Oddsson brandari

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Maður verður líka að hafa húmor fyrir sjálfum sér, jafnvel þótt maður sé sjálfsstæðismaður!

Re: Ég sakna hans

í Rómantík fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Ha já ok ég skil. Ég held að allar stelpur segist laðast bara að góðum strákum, en sumar laðast samt meira að vondu gaurunum. En ég held að ég sé með of mikið sjálfsálit til að geta fundist nokkuð varið í rudda og dóna. Þannig að ég tilheyri þeim hluta sem meinar hvað hann segir. Kveðja, eaue

Re: Ég sakna hans

í Rómantík fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Ekki á stelpur eins og mig! Það hefur oft komið fyrir að ég hef hitt stráka sem mér leist vel á í fyrstu sýn, svo þegar ég talaði betur við þá voru þeir ruddalegir og leiðinlegir og ég gjör missti áhugann. Ég veit hins vegar að margar stelpur laðast að ruddalegum mönnum sem koma illa fram við þær, og skýringin á því er oftast lágt sjálfsmat þessarra stelpna/kvenna.

Re: Mikilvægi fíkniefnaumræðunnar

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 3 mánuðum
En ef einhverjir taka sig til og berjast fyrir því að amfetamín verði lögleitt, munt þú þá vera stuðningsmaður? Ég spyr aðallega af forvitni til að vita betur um afstöðu þína. Ég vil líka afnám refsingar fyrir neyslu vímuefna, og ég vil að kannabis verði, líkt og mörg önnur ávanabindandi vímuefni, löglegt í lækningaskyni. Ég meina, sjálf varð ég til dæmis fyrir slæmum íþróttameiðslum um daginn, og sem betur fer fyrir mig þá er morfín löglegt í lækningaskyni, enda hefði ég ekki haldið út...

Re: Mikilvægi fíkniefnaumræðunnar

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Þessi stefna sem við erum að tala um er eitt af mörgu, of mörgu að mínu áliti, sem er tekið nánast beint og óbreytt frá BNA. Og við erum hvort eð er sammála um að það er ekki rétt að líta á neytendur sem glæpamenn, enda er ég ekki talsmaður þeirra sjónarmiða. Þannig að þau rök þín breyta ekki afstöðu minni gegn lögleiðingu á kannabisi. “Við megum ekki líta fram hjá því að það er fólk úti í þjóðfélaginu sem notar ólögleg vímuefni. Skiptir þetta fólk engu máli? Eigum við bara að horfa á það...

Re: Mikilvægi fíkniefnaumræðunnar

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Ég trúi líka á rétt einstaklingsins til að stjórna eigin lífi. Hins vegar verður að vera jafnvægi milli hagsmuna einstaklingsfrelsis annars vegar og hagsmuna samfélagsins hins vegar. Öfgar á hvora leið sem er teljast yfirleitt slæmar, það er bara spurning í hvernig hlutföllum þessi tvö atriði eiga að vera, og það er um það deilt endalaust í pólítík. Ég geri mér líka fulla grein fyrir því að skoðanir fyrirhyggjupólítkusanna eru ekki heldur endilega “réttu skoðanirnar”. Ég hef oft lagt áherslu...

Re: Mikilvægi fíkniefnaumræðunnar

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Þegar bjórinn var lögleiddur jókst neysla á honum að sjálfssögðu, það sem var rangt í hrakspám þeim sem þú ert að tala um var það að halda því fram að áfengismenningin breyttist til hins verra. Fólk fór að drekka minna af sterku áfengi og meira af bjór. Ég segi líka fyrir mitt leyti að ef amfetamín væri löglegt myndi ég frekar vilja sjá fólk færa sig frá neyslu á því (enda verður fólk oft aggressívt af amfetamínneyslu) og yfir í kannabisneyslu. En þetta horfir aðeins öðruvísi við...

Re: Mikilvægi fíkniefnaumræðunnar

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Hvort sem þú lítur á ákveðna einstaklinga sem andstæðinga eða of teprulegt fólk þá má allavegana segja að þessir einstaklingar sem ég tala um móta skoðanir fólks á kannabisi og öðrum fíkniefnum. Ekki satt? Kannski finnst þér vanta inn í umræðuna fræðslu um “skaðleysi” kannabisefna, gott og vel, ég held samt að fæstir vilji fá neyslu á kannabisefnum jafn almenna og útbreidda og neyslu á áfengi. Það er endalaust hægt að fara út í hártoganir um hvort kannabis sé jafn skaðlegt eða skaðlegra en...

Re: Tungumálaáhugamál

í Hugi fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Nauts maður það er ekki boring! Það er skemmtilegt! Alveg satt!

Re: Mikilvægi fíkniefnaumræðunnar

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Ég var eiginlega að fatta eitt. Ég held að helstu andstæðingar ykkar séu fyrrverandi fíklar á borð við Bubba, og svo þá sem koma í skóla til að tala við ungt fólk til að vara þau við fíkniefnadjöflinum. Þau segja ÖLL það sama: “Ég byrjaði neyslu á kannabisefnum og ánetjaðist þeim og sagði alltaf við sjálfan mig að ég hefði fulla stjórn á neyslunni, hún gerði mér ekkert slæmt, og að ég gæti hætt hvenær sem ég vildi.” En svo komust þau í raun um að þeir urðu ofurseldir fíkn sinni sem eyðilegði...

Re: *Snilld*

í Tilveran fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Já, ég hef líka lent í því að greinarsvörum mínum hefur verið eytt af því að þau samræmdust ekki fullkomlega skoðunum adminanna. O svei!!

Re: Davíð Oddsson brandari

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Stolið?? Tja allavegana samdi ég ekki þennan brandara sjálf. Er ég þá ritþjófur kannski…:-o

Re: Ég sakna hans

í Rómantík fyrir 22 árum, 3 mánuðum
“En mér er sama hvaða Freud og hinir vitleysingarnir hafa um konur og” ég meinti hverju Freud og hinir vitleysingarnir halda fram um konur og…

Re: Ég sakna hans

í Rómantík fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Noh það er bara svona, verið að reyna að bösta mann á sálfræðinni. En mér er sama hvaða Freud og hinir vitleysingarnir hafa um konur og hvernig mönnum þær falla fyrir. Þessi kenning nær engan vegin til mín og hefur aldrei gert.

Re: Tungumálaáhugamál

í Hugi fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Af því að okkur finnst gaman að pæla í tungumálum!

Re: Mikilvægi fíkniefnaumræðunnar

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 3 mánuðum
“Vissulega eru vandamál hjá unga fólkinu, en því á það að bitna á öðrum sem ekki eiga við vandamál að stríða?” Það er einmitt svona málflutningur sem fær fólk til að fussa og sveia, hvort sem það er upphaflega sammála ykkur eða ekki. Það getur verið að þér finnist þér ekki koma neitt við að lögleiðing kannabis skili sér í aukinni neyslu unglinganna á því, en það er bara staðreynd að það er fullt af fólki sem finnst mikilvægara að beita lögbanni til að hindra leið kannabisins til áhrifagjörnu...

Re: Mikilvægi fíkniefnaumræðunnar

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 3 mánuðum
oliragg, Ég meinti reyndar ekkert illt með orðinu “dópisti”, ég þekki meira að segja tvo einstaklinga sem eru fíkniefnaneytendur og kalla sig dópista sjálfir. Vera má að flestir leggi þann skilning í orðið “dópisti” að það sé neikvætt, en væntanlega hef ég litast af afstöðu þessarra tveggja einstaklinga sem ég nefndi. Ég hef ekki gert neinar rannsóknir á áfengi, enda er ég ekki læknir. Ég veit hins vegar vel að áfengið sem slíkt getur verið hinn mesti skaðvaldur, þekki það til dæmis af eigin...

Re: Ég sakna hans

í Rómantík fyrir 22 árum, 3 mánuðum
“… stelpur elska hardcore nagla.” Þetta er óþarfa alhæfing. Ég persónulega lít ekki við hardcore nöglum.

Re: Mikilvægi fíkniefnaumræðunnar

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Skuggi85, það er alveg hægt að fullyrða að ríkið muni græða stórkostlega ef það myndi selja fíkniefni og skattleggja það, og það er hægt að nota aðferðafræði hagfræðinnar til að áætla gróðann á góðan máta. En það sem fólk óttast hvað helst er að lögleiðing fíkniefna auki ásókn í neyslu þeirra. Nei, ég er ekki að tala um fullorðna einstaklinga sem eru búnir að gera upp við sig fyrir löngu að þeir hafi ekki áhuga á dópi, heldur fyrst og fremst unglinga sem sjá ekkert athugavert við að prófa...

Re: Mikilvægi fíkniefnaumræðunnar

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Ég er alveg sammála því að það er engin lausn á fíkniefnavandanum að ýta umræðunni til hliðar og hugsa: “Þetta er ekkert vandamál.” Þetta er nefnilega víst vandamál, það þýðir ekki að loka augunum fyrir því. Spurningin er bara, viljum við lögleiða fíkniefnin eður ei? Svar mitt við spurningunni er eitt stórt NEI því ég tel mig hafa góðar forsendur til að halda því fram að það sé engin leið til að taka á vandanum. Margir nota þau rök að alkohól sé leyft og það sé ennþá verra en kannabis. Ok,...

Re: Gettu Betur 2004

í Skóli fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Hmmm ég var nú ekki að snúa hlutunum í grín vegna neins hentugleika, ég gerði einhvern vegin ráð fyrir að allir þekktu þennan MR nörda brandara en einhvern tíman er víst allt fyrst. Já, ég sé að þú bregst ókvæða við hroka hvort sem hann er í gríni eða alvöru, og túlkar hann greinilega eftir eigin höfði. Mér finnst þú ættir að slaka aðeins á því. Lífið er of stutt til að vera svona upptrekktur endalaust! Brostu!

Re: Gettu Betur 2004

í Skóli fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Hmmm ég var nú ekki að snúa hlutunum í grín vegna neins hentugleika, ég gerði einhvern vegin ráð fyrir að allir þekktu þennan MR nörda brandara en einhvern tíman er víst allt fyrst. Já, ég sé að þú bregst ókvæða við hroka hvort sem hann er í gríni eða alvöru, og túlkar hann greinilega eftir einu höfði. Mér finnst þú ættir að slaka aðeins á því. Lífið er of stutt til að vera svona upptrekktur endalaust! Brostu!

Re: Mikilvægi fíkniefnaumræðunnar

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 3 mánuðum
“þetta er eithvað sem mun aldrey ganga á svörtum markaði, síðan það er hvortsemer bannað að selja þetta, hverju skiptir það hverjum maður selur þetta? ” Þarna erum við greinilega mjög ósammála, mér finnst það skipta höfuðmáli HVERJUM eru seld fíkiefni, hvort sem þau eru lögleg eða ólögleg. Ef þau eru ólögleg og haldast þannig, þá finnst mér að refsibyrðin ætti að vera þyngri á þeim sem selja unglingum eiturlyf. Ef ákveðinn fíkniefnaneytandi selur unglingum efnin og fær þungan dóm ætti það að...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok