Nei, það meiðir mig ekkert persónulega þegar fólk í dag agnúast út í einstaka meðlimi í samtökum sem ég er ekki einu sinni meðlimur í sjálf (Femínistafélagið), en mér finnst það bara vottur af fáfræði að halda því fram að femínisminn, hugmyndafræðin, gangi út á hatur á karlmönnum og bla bla bla. Sumir femínistar eru mjög öfgafullir og halda fram hlutum sem fæstir aðrir myndu samþykkja, en öfgafullir femínistar eiga tilverurétt eins og öfgafullir hægrimenn, öfgafullir náttúruverndarsinnar og...