Ok ! Þið sem hafið ekkert annað að gera en að hanga í tölvunni og svara greinum með eitthverjum leiðinlegum orðum hættið að lesa núna og fáið ykkur líf. ég er komin með nóg af svörum frá fólki sem hefur ekki enn þroskast !

Ég var að lesa eitthverja grein á netinu á eitthverri síðu og þar var verið að tala um Feminísta og það sem þeir gera. Þar var sagt að karlkynið ( sérstaklega ungir strákar ) sem alast upp við þessa umræðu og heyra allskonar dót sem sumir karlar gera við konur sínar eins og að kúga þær, að þessir strákar verðir sumir þunglyndir og þora ekki að segja sína skoðun á málum kvenna eða e-ð svoleiðis. Ég meina ekki viljum við að Ísland verði eins og Bandaríkin þar sem ekki má sjást í lítið brjóst sem var með smá brjóstaskraut á sér ? að það megi ekki sjást naktar konur í auglýsingum ( tek það fram að það sést eiginlega ekkert mikið í Freyju Draums auglýsingunni ). Þvílíkar manneskjur sem tala um að ef ein kona er sett nakin í auglýsingu þá er verið að móðga allar aðrar konur, þessar konur sem koma fram fáklæddar í auglýsingum gera það á sínum vegum, og hvernig dirfast þessar konur að koma í veg fyrir að nærfatasýning er í fegurðasamkeppni, hvað halda þær að þær séu ? Ísland verður örugglega bráðum svo lokað land að ekki má nefna orðið Kynlíf ef þessir feminístar fá að halda því áfram sem þeir eru að gera. Kallið mig illum nöfnum ef þið viljið en ég sé engan tilgang með að úthúða karlkyninu og gjörðum nokkra karla þegar enginn karl er alveg eins.

Ég veit að strákum nú til dags finnst þessi umræða fáránleg og það finnst mér líka ( ég er kvk ), ef konur koma fram í auglýsingum fáklæddar er það þeirra val og þeim finnst örugglega ekki að það sé verið að móðga allt kvenkynið. Fyrir mér er þetta fáránlegt og ég spyr hafa þessar konur ekkert annað að gera en að úthúða karlkyninu og kenna þeim um það sem gert hefur verið við konur síðustu aldir ??

Ég meina hvernig væri að úthúða stjórnmálamönnum sem hafa greinilega meira að gera en að breyta lögum landsins svo að kynferðisafbrotamenn fái lengri tíma bak við lás og slá. Þótt að eitthverjum karlmönnum finnst það eitthvað turn-on að nauðga konum þýðir það ekki að allir karlmenn séu svoleiðis, og þótt að eitthver karl af gömlu kynslóðinni finnst að konan ætti að vera í eldhúsinu og að sjá um börnin þá eru aðrir karlmenn ekki svoleiðis. Hvernig væri ( feminístar ) að þið opnið aðeins augun og hugsið um hvaða fáranlega kenningar þið eruð með ?

Þetta er mín persónulega skoðun, ég er ung og er kvk þið megið kalla mig öllum illum nöfnum og mér finnst það leitt ef ég hef móðgað einhverja en þetta er mín skoðun á þessu máli og mér finnst að fólk ætti að hætta þessari vitlausu um að karlkynið sé eitthvað hræðilegt og fara að tala um það sem skiptir meiri máli !