Vinsamlegast farðu varlega í þetta vinur minn. Ekki reykja mikið af þessu í einu. Vinur minn var í Danmörku á Hróaskeldu þegar hann keypti sér pípu +píputóbak. Svo fór hann bara á fyllerí og púffai þessa blessuðu pípu allt kvöldið. Hann skipti þessu bara út fyrir sígarettur í svona eitt kveld. En, svo vaknaði hann næsta dag. Vegna þess hversu mikið hann reykti á svona stuttum tíma, fann hann ekki neitt bragð af mat næstu 2 vikurnar. Hann bara drap á sér kjaftinn. Þetta er dagsatt. Píputóbak...