Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

pökkun (2 álit)

í Ljóð fyrir 23 árum, 1 mánuði
í kvöld verður úthellt blóði innpakkaðrar sálar yfir torgið yfir ljósastaurana yfir næturhimininn aldrei framar skulu ljósastaurarnir gleypa næturhimininn sem lýsir upp blóð innpakkaðra sálna

:A:T:H: (2 álit)

í Ljóð fyrir 23 árum, 1 mánuði
ath hugsanakúgunina ég lifi aftengdur þú hræðir mig ekki með skeiðinni þinni þú hræðir mig ekki með gafflinum þínum ath blóðblettina á torginu þetta gerist svo oft okkur er alveg sama betra að það sé hann en ekki ég ath holuna í brjóstkassanum þetta er allt í lagi það eru til allskonar gerviefni sem fylla nokkurnveginn upp í tómið ath allt er leyfilegt en bara á meðan tryggt er að þú sért samtengdur hugsunum okkar ath að á meðan þú lest þetta þá er ég að stökkva útúr sviðsmyndinni...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok