Ég vona að fólk geri sér grein fyrir því að þessi gítar mun finnast fyrr eða síðar, þetta er ekki eitthvað sem maður geymir undir rúmi endalaust og ég mun aldrei hætta að leita. Ef einhver hefur keypt hann verður hann að gefa sig fram því löglega er þessi gítar minn og þegar hann finnst mun ég fá hann. Ég get hinsvegar séð til þess að sá sem hefur keypt hann muni fá peningana sína aftur, þessi þjófnaður verður kærður nema gítarnum verði skilað í óaðfinnanlegu ástandi og án alls vesens.