Brother Ali, Ant og Sluggo efst á blaði. Það var sjúk tilfinning. Svo hef ég hitt flesta íslensku frægu rapparana, þrátt fyrir að búa á landsbyggðinni.
Ég get nú sagt þér það án þess að þekkja þig að í mun meira en helmingi af því hiphopi sem þú hlustar á er notast við hljóðsmölun, þeas, nota hljóðbúta úr öðrum lögum. Þetta hefur verið gert frá örófi alda og ekki bara hiphopcats að gera þetta. Mér finnst nú ljótt þegar það eru teknar kannski 8-16 sekúndur úr lagi og ekki gert neitt. Einu sinni heyrði ég lag þar var næstum bara rappað yfir lagið sjálft. Sköpunargleði pródúsera er bara mismunandi. Svo fara sumir eftir lögmálinu um magn en...
Hægra neðra horninu? Þetta er J Dilla. Á þessari mynd eru: (V-H), Talib Kweli með hálft andlit, Common, Mos Def, líklegast James Poyser, Erykah Badu, ?uestlove, D'Angelo, Q-Tip, J Dilla og Bilal.
Já einmitt. Þetta er mjög skrítið samt. Þetta eru löglegir veggir, það er ég mjög viss um, þannig að þeir hefðu varla getað gert eitthvað. Annars var geðveikur veggur rétt hjá Greifanum/BT/Vís, og WNC og Dire voru alltaf að gera eitthvað stöff. Svo var hann bara tekinn í tvennt! Í tvennt! Shit hvað ég var reiður.
Það er engan veginn gott. Það er eins og að spurja “er gott að lesa fyrir próf í fallhlífarstökki?”. Það er bara allt of mikil truflun og það er sannað mál. Ég veit ekki um einn einasta kennara, eða nemanda for that matter, sem mælir með því að læra með tónlist. Þess vegna sagði ég “Nei!”. En ef að þú vilt flétta einhverjar formúlur inní nýjustu hittara Röggu Gísla og mæta svo í samræmdu og raula og svo kemur allt aftur til þín, þá er það gott og blessað.
Já þetta er reyndar gott svar. Þessi vitleysa er soldið matreidd fyrir nýkomna á huga. T.d. ég kom hingað fyrst 2002 og þá var classic stuff í gangi hérna. Ég meina 7Berg, DNA, Bent, og Stjáni og þessi gæjar voru að pósta textum. T.d. Robbi Kronik og Dj Fingaprint að ræða málin, ill plötudómar um hina og þessar hetjur og great stuff. Þetta mótaði mig sem mann þá daga. Ég sakna þess óendanlega.
Varla. Ég meina það eru örfáir cats með viti hérna. Ég get allavega talið þá á fingrum mér. Restin er pretty much vitleysingar. Hvar eigum við að setja þá?
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..