Bara pæling hvort það væri ekki sniðugt að búa til tvö áhugamál úr þessu hip hop áhugamáli?

Eitt svona backpacker/nerd rap áhugamál (eins og þetta er í raun núna) og eitt old school/golden era áhugamál.

Svo ég tali fyrir mína parta þá er ekkert í nerd rap-inu sem höfðar til mín… einfaldlega ekki hip hop eins og ég þekki það…

Ég er ekki að reyna að búa til einhver læti hérna… margir af þessum artistum eru hæfileikaríkir…

En ég vil scratch, soul, jazz, útúrtjillað væb, feitan bassa og sem minnst af væmnum textum (ég er ekki lengur reiður unglingur) í mitt hip hop, þetta finn ég ekki í nerd rap… svona er bara minn smekkur…

Svipað þessu var gert með rokk áhugamálið svo ég held þetta ætti alveg að geta gengið hérna líka…

Komið með positve feedback og slökum á dissinu…