Þökkum jákvæðar athugasemdir. Og ég tek undir allt sem þú segir. Ég get ekki séð að neinir Quake'arar hafi skráð sig, og er ég mjög vonsvikinn varðandi undirtektir ykkar. Og svo er fólk líka að væla yfir að verðlaunin séu meiri fyrir CS, það hafa margir skráð sig í CS en samt ekki nógu margir. Maður fer að halda að fólk sé ekkert fyrir breytingar í þessari menningu, og vilji bara halda sig við Skjálfta og Smell. Núna fer að verða of seint að skrá sig, en þið hafið möguleika í dag og eithvað...