Ég vil ekki fara of djúpt ofan í söguna á svona opnum vettvangi (þar sem við eigum eftir að tryggja höfundarrétt okkar). En grunnhugmyndin er sú að hafa gameplay sem er ekki ósvipað leikjum eins og Monkey Island serían, The Longest Journey, Grim Fandango, … Sögusviðið er í heimi sem við höfum skapað frá byrjun, og erum komnir með mikið backstory þannig að nokkur dýpt ætti að nást. Svo höfum við auðvitað stór plön fyrir heiminn seinna meir, en við ákváðum að best væri að byrja smátt.