Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

cleoshi
cleoshi Notandi frá fornöld 4 stig

Re: Inni kettir í blokkum

í Kettir fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Ef þetta er bara ein nótt þá ætti þetta nú ekki að vera mikið mál, svo lengi sem hún sleppur ekki fram. Ef þetta væri lengri tími sem þú þyrftir að passa hana þá er sniðugt að fá leyfi hjá hinum íbúunum. Það gerðum við allavegana þegar við þurftum að passa tík fyrir systur mömmu í eina viku.

Re: Hvað á ég að gera?

í Kettir fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Ef til vill vantar honum bara eitthvað að leika sér með, prófaðu að kaupa tuskumýs eða bolta handa honum. Kettlingar eru mjög fjörugir svona fyrst, minn vakti mig alltaf kl 5 til 6 á morgnana fyrst og vildi leika eða bara knúsa. Hann gerir þetta reyndar ennþá að koma uppí snemma að morgni og leggur sig á koddanum mínum en ég er hætt að vakna við það. Ef hann er að halda fyrir þér vöku þá er í fínu lagi að loka hann frammi ef hann er með mat og vatn og svo ef til vill eitthvað að leika sér...
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok