Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

S0000000rrrppp000 (16 álit)

í Sorp fyrir 17 árum, 6 mánuðum
jæja, sorpið er greinilega búið að lifna við… Ég var einusinni á leiðinni út með sorpið, og sorpskrímslið kom aftan að mér og byrjaði að ráðast á mig, og þá komst ég að því að þetta voru bara baldvin og siggi! og þeir sögðu, neeee bara sorpa í þér kjellin! og síðan fóru þeir… soooorrrpppp..

Tristis Est Anima Mea (8 álit)

í Klassík fyrir 17 árum, 6 mánuðum
Hefur einhver heyrt Tristis Est Anima Mea með Orlando Di Lasso? Þetta ótrúlega tónverk er bara geggjað, ég heyrði það í tónlistarsögu, og ég sem er alls enginn aðdáandi klassískrar tónlistar, fannst þetta alveg geggjað! Ég mæli með þessu tónverki, það er kraftmikið og skemmtilegt!

woohoo!! (20 álit)

í Gullöldin fyrir 17 árum, 6 mánuðum
jeeei Úlfur er búinn að senda fyrirspurn til Vefstjóra hvort það sé hægt að breyta um lit á Gullöldinni!! Vei! hverjir eru með?

Hvað stendur =Æ fyrir? (2 álit)

í Sorp fyrir 17 árum, 6 mánuðum
Sko, ég er að sjá þetta stuff útum allt, og er alltaf að spá svona, er þetta kall að segja ÆÆÆ eða er þetta einhver geimvera með hangandi kjötbita útur munninum? Óþolandi að vita ekki hvað þetta er.. :Æ =Æ what ever.. veit ekki hvað fólk er að meina með þessum merkjum..

Læsing á herbergjum! (23 álit)

í Sorp fyrir 17 árum, 6 mánuðum
Sko, fyrir svona flippaða sorpara eins og okkur, þá finnst mér að við ættum að geta verið í okkar eigin heimi (Tilvitnun í hugarheim Echoes) Læsing á herbergjum er eitthvað sem við flippuðu sorparar þurfum! við þurfum læsingar til að geta hlustað á tónlist og dansað og snúið okkur í hringi yfir gullaldartónlist og við verðum að geta fengið útrás! með læsingar á herbergjum! Hverjir eru með á uppreisn gegn foreldrum? LÆSINGAR! skipta höfuðmáli í lífi fólks!!

Kökupuff (31 álit)

í Sorp fyrir 17 árum, 6 mánuðum
ÉG var í heimilsfræði og var að baka köku og þá kom kennarinn og sagði mér að éta hana, og ég kastaði kökunni í hana og hún fór að gráta.. Ég var rekinn úr skólanum.. Einhver með ráð?' Skjóta skólastjórann kannski?

Skemmtileg mamma **umræða** (7 álit)

í Háhraði fyrir 17 árum, 6 mánuðum
Mér sýnist þetta nú ekki vera mamma stráksins, Hann kallar Nafn hennar aftur og aftur :| Svoldið steikt og Evil líka.. en hvað átti þessi kona að gera? standa um og losa hann?

Kæru sorparar! (18 álit)

í Sorp fyrir 17 árum, 6 mánuðum
Ohh hatiði ekki pop-upa og auglýsingar útí hliðunum og efst og neðst á síðum? ÞOLI ÞAÐ EKKI!!! BARA VÍRUSAR!! VÍRUSAR! VÍRUSAR gera okkur þann greiða að geta ekki verið í tölvunni því maður er búinn að rústa henni því maður er svo pirraður yfir að hún er svo ógeðslega slow!.. En ok, hefur einhver hérna labbað útá götu allsber?

Surface (14 álit)

í Spenna / Drama fyrir 17 árum, 6 mánuðum
Hvað í helvítinu varð um surface?? Ég hringdi í skjáeinn og konan vissi ekki rassgat um þetta.. Er þetta nokkuð hætt? Það stóð ekki lokaþáttur eða neitt!

Pirrandi! (4 álit)

í Gullöldin fyrir 17 árum, 6 mánuðum
Ég veit vel að stjórnendur eru uppteknir, en stundum tekur það svoldið langan tíma að það komi hvort myndir hafi verið samþykktar eða hafnað.

GEGGJAÐ LAG! (14 álit)

í Gullöldin fyrir 17 árum, 6 mánuðum
Eins og allir vita, þá eru falleg lög, flott lög, þægileg lög, og allskonar svoleiðis. En svo eru líka “geggjað kúl lög sem öllum líkar” Þá er ég að tala um lög eins og Money með Pink Floyd, eeeðaaa… eitthvað svoleiðis, en svona lög sem eru svo kúl, að aðeins fólk sem hefur ekki tónlistarsmekk eða hlustar bara á einhverja skítatónlist fílar þau ekki.. Lög eins og Peter Gunn Theme með blues brothers, það er ofurkúl, og allir fá svona hroll yfir hvað það er flott. Veit einhver um svona geggjuð lög?

ÓÞOLANDI FÓLK (43 álit)

í Gullöldin fyrir 17 árum, 6 mánuðum
Ég var í skólanum um daginn og strákur með mér í bekk kíkir á ipodinn minn og sér að ég er að hlusta á The Doors. Eftir um 20 mínútur kíkir hann aftur og þá er ég að hlusta á The Rolling Stones, og þá ákveður hann að hella sér yfir mig, og bendir mér á að taka heyrnatólin úr eyrunum, og geri ég það. Hann segir: þú hlustar bara á The Doors og Rolling Stones, (hann ætlaði greinilega að dæma af þessum 20 mínútum sem hann fylgdist með ipodinum mínum) Hann sagði að ég væri bara gullaldarfrík og...

BEST OF DISKAR!! :@ (15 álit)

í Gullöldin fyrir 17 árum, 6 mánuðum
Sko, ég þoli ekki best of diska!.. Bókstaflega óþolandi.. Að vera að þessum best of diskum er bara rugl, fínt já ef maður vill kynnast hljómsveit hratt, en þá er öll bestu lögin á öllum diskunun komin saman í eitt, og það er leiðinlegt, frekar að kynnast ekki bestu lögunum líka.. Einhverjir andmælendur? einhverjir sem standa með mér?

Saaantanaa (6 álit)

í Gullöldin fyrir 17 árum, 6 mánuðum
Gott fólk.. erfitt er að fá upplýsingar um góða diska með santana þegar maður er með leiðinlega lasermús og enga góða músamottu.. Gæti einhver hjálpað mér? Bara einhverja góða diska :) PLÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍS!

""Deyja út?"" (58 álit)

í Rokk fyrir 17 árum, 6 mánuðum
bíddu, skjátlast mér, eða er “rokk” að tapa sér eða? eins og það hafi minnkað eitthvað ='( Ég skil þetta með eurovision og eitthvað svoleiðis pakk, en ekki ROKK!!! ROKKIÐ LIFIR (halda því uppi eða?.. hverjir eru með!! :D :D :D :D :D :D :D :D

Nýr litur á þessa síðu! (13 álit)

í Gullöldin fyrir 17 árum, 6 mánuðum
Sko, ég var að pæla, mér finnst vanta nýjan lit, hvítur er svo einhæfur og kuldalegur eitthvað, einhverjir sammála?

MEDAL OF HONOR ALLIED ASSAULT TIL SÖLU!! (3 álit)

í Tölvuleikir fyrir 17 árum, 6 mánuðum
já, ef einhver vill kaupa allied assault af mér, nærrum ekkert notaður, allt í fínasta standi. Hafið samband við mig ef ykkur langar..

NFS CARBON! (2 álit)

í Tölvuleikir fyrir 17 árum, 6 mánuðum
LOKSINS!! NFS CARBON KEMUR NÆSTA FÖSTUDAG (3NOVEMBER) GEGGJAÐ… og hverjir ætla að skella sér á hann? Sko, fyrir þá sem ekki vita þetta: ég ætla að freista fólks! Chevrolet ss verður (einhver gerð) mustang 67 (Eleanor í gone in 60 seconds) einhver plymouth, og svo verða líka nýjir bílar! GUÐ MIG HLAKKAR TIL NÆSTA FÖSTUDAGS!!

Leiði á tónlist!! =((( (68 álit)

í Rokk fyrir 17 árum, 6 mánuðum
Hefur þú einhvern tímann fengið leið á einhverri hljómsveit? ég fékk nebblilega geggjað leið á AC/DC með því að mata mig á henni í eina og hálfa viku.. hlustaði bara á AC/DC.. keypti 4 diska með þeim á þessum tíma.. En ég þori varla að hlusta mikið á sömu hljómsveitina eftir þetta atvik!

Þægindi! (30 álit)

í Gullöldin fyrir 17 árum, 6 mánuðum
AAhh, þekkiði ekki tilfinninguna og þægindin við að klukkan sé 2 eða þrjú um nótt, allir sofandi, og maður hlustar á tónlist.. rosa lágt, rólega klassíska rokktónlist.. vonar að enginn vakni, og síðan flakkar maður á huga, skrifar greinar, commentar.. hlustar á tónlist í marga klukkutíma, síðan fattar maður að klukkan er orðin 5, og þetta eru bestur stundir lífs þíns, ekkert hljóð, nema andardrátturinn, tónlistin, og mesta lagi tikkið í klukkunni sem yfirgnæfist í tónlistinni sem er samt svo...

Valdi með Klassískt rokk! (9 álit)

í Gullöldin fyrir 17 árum, 6 mánuðum
Ég var að skoða síðuna hans Valda og hann pantar bara inn eitthvað metal, hvar er allt klassíska rokkið?? ég fór þarna nokkrum sinnum fyrir nokkrum mánuðum minnir mig, og þá var hann með fullt af klassísku rokki og stuffi, en nú er hann bara með metal og voða lítið af þessu, er það ekki annars?

Vinyl plötuspilari! (10 álit)

í Gullöldin fyrir 17 árum, 6 mánuðum
Er hægt að kaupa vinyl plötuspilara einhverstaðar? það er náttlega löngu hætt að framleiða þá er það ekki?, ég á einn gamlan, en það vantar nál, og allt í fokki..

Safnarinn og Valdi! (4 álit)

í Gullöldin fyrir 17 árum, 6 mánuðum
Getur einhver sagt mér nákvæmlega hvar Safnarinn er? Langar nebbliega að vita það, kannski heimasíða líka? =P Á Valdi heimasíðu? (geisladiskabúð Valda fyrir þá sem skilja ekki “Valdi” =P)

Vinyl plötur! (23 álit)

í Rokk fyrir 17 árum, 6 mánuðum
Já góðan og blessaðan daginn, bróðir minn keypti sér hérna kill 'em all vinyl, first edition, á 2000 kjell. Ég ætlaði ekki að trúa því þegar hann fékk hana á svona góðu verði, enda er þetta uppáhaldsplatan mín með Metallica. En Hvað um Það, eru einhverjir fleiri með svona klassískar plötur á VINYL sem hann vill selja? ég meina, fullt af fólki að halda upp á þetta stuff, en ef svo er ekki (ef fólk vill selja þetta stuff og fá sér frekar bjór eða eitthvað =P) þá er ekkert mál að kommenta!! =)))

ER EINHVER MEÐ GEISLADISKA TIL SÖLU? (19 álit)

í Gullöldin fyrir 17 árum, 6 mánuðum
Ég er búinn að vera að pæla svolítið í þessu, að ég hef ekki séð marga geisladiska til sölu undanfarið.. En ef einhver er með góða diska sem hann er búinn að fá gjörsamlega nóg af.. commenta? =P
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok