Það er mjög auðvelt að búa til Jógúrt. Til þess að viðhalda gerlinum og halda áfram löguninni þegar skammturinn er búinn, þarf aðeins að halda til haga 180-200 grömmum af jógurtinu í næstu lögun. Í byrjun þarf: 180 grömm hreint Jógúrt án bragðefna (1 dós) 1,5 lítrar mjólk Látið suðuna koma upp á mjólkinni og hellið í ílát með loki. Látið kólna við stofuhita í c.a. 38-42 gráður. Hrærið jógurtinni saman við rösklega. Setjið lokið á og látið standa óhreyft í 6 klst við stofuhita. Mikilvægt er...