Þetta er góð ábending hjá bebecar. Við gerðum einmitt ráð fyrir hinu besta í byrjun og gáfum manninum rúman tíma til að skila bílnum. Sölumaðurinn hringdi í hann rúmum 2 klst. eftir að hann fékk bílinn og þá sagðist hann alveg vera að koma. Hann hafði fengið leyfi til að prófa í 20 mín þegar hann fékk bílinn. Brimborg er, að gefnu tilefni því miður, með mjög strangar reglur varðandi prufuakstur á nýjum og notuðum bílum en það er erfitt að verjast þegar ásetningurinn er algjör og menn gefa...