Skemmtileg grein, ég er einmitt einn af þeim sem geta horft á myndirnar aftur og aftur og aftur og aldrei fengið leið á þeim. Ég er sérstaklega sammála þér með tónlistina hans Howard Shore. Hún er alveg hreint frábær og hæfir fullkomlega í hverju einasta atriði. Titillagið í The Return of the King er í sérstöku uppáhaldi hjá mér, sérstaklega þegar kveikt er á vitinum á Hvítufjöllum og þegar Gandalfur og Pípinn eru á þeysireið upp eftir allri Mínas Tírið. Þegar maður heyrir þessa tónlist veit...