1En Jesús fór til Olíufjallsins. 2Snemma morguns kom hann aftur í helgidóminn, og allur lýður kom til hans, en hann settist og tók að kenna þeim. 3Farísear og fræðimenn koma með konu, staðna að hórdómi, létu hana standa mitt á meðal þeirra 4og sögðu við hann: “Meistari, kona þessi var staðin að verki, þar sem hún var að drýgja hór. 5Móse bauð oss í lögmálinu að grýta slíkar konur. Hvað segir þú nú?” 6Þetta sögðu þeir til að reyna hann, svo þeir hefðu eitthvað að ákæra hann fyrir. En Jesús...