Minn er líka svona, borðaði ekkert fyrstu dagana (fékk reyndar líka niðurgang þannig að greyið horaðist). Ég sauð rækjur (eða fisk) í vatni þannig að það var mikil rækjulykt af vatninu. Bleytti upp í kettlingamatnum með því. Gaf honum svo hrísgrjón (til að stöðva niðurganginn) stöppuð saman við uppbleytta matinn og nokkrar rækjur saman við (þú gætir hér notað fisk og jafnvel kartöflur). Þetta át hann með bestu lyst. Reyndar vill minn líka hakkað lambakjöt með grænmeti, kartöflum og sósu...