Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

baraklemma
baraklemma Notandi síðan fyrir 22 árum, 9 mánuðum 12 stig

Re: Minn kæri húsbóndi

í Hundar fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Hæ Tara og takk fyrir svarið. Tíkin mín hagar sér nákvæmlega eins og þú lýsir þ.e. hleypur um allt og virðist ekkert heyra eða kemur skokkandi í áttina til mín en ekki nógu nálægt til að ég geti klappað henni. Ég held einmitt að hún haldi að ef hún komi alveg til mín sé fjörið búið. Eftir því sem fleiri dagar líða verð ég ákveðnari í að láta þetta ganga vel og líkar betur og betur við skapgerð hennar. kíki á bestivinur.com þakkir og kveðja baraklemma

Minn kæri húsbóndi

í Hundar fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Vá.. þakka góð ráð og ábendingar. Tegundin er Irish Setter ægilega rauðhærð og sæt :) Mér líst vel á að prófa að hafa hana í löngum taumi og æfa okkur þannig, með því móti get ég verið afslöppuð því ég get alltaf togað hana til mín ef hún óþekktast. Gott að heyra þetta með virðingastigan á heimilinu því ég held einmitt að henni finnist hún vera ofar en sumir aðrir heimilismeðlimir. Er nokkur möguleiki á að fá nafnið á þessari töfrakonu sem hjálpaði þér Steingrímur? Þakkir og kveðja baraklemma
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok