Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Verð á DVD diskum komið út í öfgar!

í Kvikmyndir fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Bjöggi: My point exactly! Hin Norðurlöndin virðast ekki vera með þetta svona okurdýrt… REYNDAR fannst mér DVD óeðlilega dýrt í Osló í sumar miðað við Kaupmannahöfn - kannski var ég bara ekki að versla á réttum stöðum í Osló?

Re: Verð á DVD diskum komið út í öfgar!

í Kvikmyndir fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Azmodan: Ég hef starfað í tölvuverslunum síðan 1997 og ég því miður get ekki verið sammála þér þarna um verðlagsþróun í PC leikjum. Þeir hafa nánast kostað það sama öll þessi ár. Kannski hækkað og lækkað eðlilega miðað við verðlagsbreytingum á öðru dóti eins og matvöru og þess háttar… DVD diskar hins vegar hafa hækkað um 100% í heildsölu án VSK á þessu tímabili - sem segir okkur að það er eitthvað gruggugt í gangi hjá innflutningsaðilum (SAM eða Skífan eða whatever).

Re: Verð á DVD diskum komið út í öfgar!

í Kvikmyndir fyrir 23 árum, 4 mánuðum
JonGretar : Já það má kannski að hluta til rekja þetta til gengisbreytinga. En við skulum ekki gleyma því að US dollarinn hefur hækkað mikið en evrópskir gjaldmiðlar ekki svo mikið (jú kannski sterlingspundið úr 110 í 135). Þannig að ég held það sé ekki hægt að rekja þetta alfarið til gengisbreytinga vegna þess að region 2 dvd myndir eru ekki keyptar frá USA.

Re: Flat top picking

í Hljóðfæri fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Takk fyrir greinagott svar. Ég tel mig hafa gott tóneyra. Var í tónlistaskóla í 10 ár og lærði þar á fiðlu í 5 ár, til að spila á fiðlu þarf maður skrambi gott tóneyra… En enn og aftur takk fyrir góð tip. Ég ætla að prufa mig áfram.

Re: Kristján Kristjáns a.k.a KK

í Hljóðfæri fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Jæja það er komið: KK – Grand hótel Af plötunni Gleðifólkið Hátt til lofts og innantómt Á Grand hótel Hér má enginn trufla mig Það veistu vel Tíminn frosinn stendur kyrr Mér finnst ég hafa verið fyrr Á Grand hótel Gamall leggur brotin skel Á Grand hótel Langt um liðið löngu skeð Sama er mér Tíminn frosinn stendur kyrr Mér finnst ég hafi séð þig fyrr Á hótel Grand Stúlka í litadýrð er lífið nýtt Hún skynjar meir en nokkur veit Hávær þögn í myrkrinu í huga mér Svart og hvítt er litadýrð Sem...

Re: Kristján Kristjáns a.k.a KK

í Hljóðfæri fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Geit: Ég skal fara í textamálið, ath hvort ég geti ekki fundið hann eða amk “pikkað hann upp” af disknum. KK fan#1

Re: Tønleikar i køben

í Rokk fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Damn, mann langar nú óneitanlega á flest alla þessa tónleika..! Væri gaman að skreppa á Tracy Chapman, Davíð Gráa og Stones… Svo væri geðveikt að sjá Soulfly!
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok