Þakka þér fyrir upplýsingarnar. Mig langar til að koma annarri hugmynd að: Það er eitt og annað sem mér finnst að við ættum að athuga þegar verið er að byggja og bæta. Sumt veit ég orðið um, annað vildi ég fá að heyra frá öðrum - áður en það er of seint. Til dæmis: Eldhúsvaskur á að vera svo stór að hægt sé að þvo upp stóra potta og ofnílát í honum. Ofnplötur eiga helst að komast í ofnskúffuna! Gott er að hafa 4 plötur á eldavélinni, þar af eina hraðsuðuplötu. Hvað finnst öðrum nauðsynlegat...