Í DJÚPUM SKÍT Sigmundur lá í rúminu sínu og leit á klukkuna. Hún var að ganga fjögur. Hann leit í kringum sig, mundi þá allt í einu og hrópaði: „Sjitt ég á eftir að taka allt fokking draslið saman, og mamma og pabbi koma heim frá Spáni klukkan átta í kvöld. Þau eiga eftir að drepa mig ef þau komast að því að ég hafi verið með partý í gær.“ Sigmundur sem er 17 ára, dökkhærður með krullur og dálítið stór, hljóp niður stigann, tók upp símann og hringdi í nokkra vini sína og bað þá um að koma...