Þetta er frábært script, í raun svo gott að ég ákvað að fara að skoða python. Eftir að hafa skoðað það eyddi ég lunganum úr helginni í að skrifa nýtt script sem ég fæ reyndar að hluta til lánað úr ýmsum öðrum scriptum. Ég er kominn með inn í það núna Hugi-Clips, Hugi-Trailers og Visir-Fréttir… er aðeins að laga vísir fréttir en þegar það er komið mun ég pósta það. Ég ætla líka að bæta inní það, Ruv fréttir og skjarinn.is þáttunum, að lokum kanski meiru af veftívi en ég á eftir að skoða það...