ójá..ég er að vinna á subway og það kom maður um daginn sem var brjálaður af því að sósa, sem heitir dion horsrætessósa (kann ekki að skrifa), var hætt..hún var mjög óvinsæl svo það var ákveðið að hætta bara með hana því annars skemmist hún bara… maðurinn skammaði mig og aðra stelpu fyrir það og sagði að við værum bara latar og nenntum ekki að fara bakvið að sækja sósuna. Ég veit hvar allt er geymt og ég tek á móti vörunum og ég veit hvað er til og hvað ekki. Þoli ekki þegar fólk er að væla...